Vorfagnaður Blindrafélagsins 8. apríl 2022. 1. Óbyggðirnar kalla (Magnús Eiríksson) Hoppa kátur út um dyrnar við blasir himininn, himinblár er bláminn himneskur jökullinn. Óbyggðirnar kalla og ég verð að gegna þeim, ég veit ekki hvort eða hvernig eða hvenær ég kem heim. Bergmál óbyggðanna svo bjart í huga mér, leiður á öllu og öllum hundleiður á sjálfum mér. Óbyggðirnar kalla og ég verð að gegna þeim, ég veit ekki hvort eða hvernig eða hvenær ég kemst heim.Hoppa kátur út um dyrnar við blasir himininn, himinblár er bláminn himneskur jökullinn. Óbyggðirnar kalla og ég verð að gegna þeim, ég veit ekki hvort eða hvernig eða hvenær ég kem heim. Bergmál óbyggðanna svo bjart í huga mér, leiður á öllu og öllum hundleiður á sjálfum mér. Óbyggðirnar kalla og ég verð að gegna þeim, ég veit ekki hvort eða hvernig eða hvenær ég kemst heim. 2. Litla flugan (Sigfús Halldórsson / Sigurður Elíasson) Lækur tifar létt um máða steina. Lítil fjóla grær við skriðufót. Bláskel liggur brotin milli hleina. Í bænum hvílir íturvaxin snót. Og ef ég væri orðin lítil fluga Ég inn um gluggann þreytti flugið mitt. Og þó ég ei til annars mætti duga Ég eflaust gæti kitlað nefið þitt. 3. Vor í Vaglaskógi Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg, við skulum tjalda í grænum berjamó. Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær, lindin þar niðar og birkihríslan grær. Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum, leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær. Daggperlur glitra um dalinn færist ró, draumar þess rætast sem gistir Vaglaskóg. Kveldrauðu skini á krækilyngið slær. Kyrrðin er friðandi, mild og angurvær. Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum, leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær. 4. Komdu í kvöld (Lag / texti Jón Sigurðsson) Komdu í kvöld út í kofann til mín þegar sólin er sest og máninn skín. Komdu hér ein því að kvöldið er hljótt og blómin þau sofa sætt og rótt. Við skulum vera hér heima og vaka og dreyma, vefur nóttin örmum hlíð og dal. Komdu í kvöld út í kofann til mín þegar sólin er sest og máninn skín. 5. Játning Enn birtist mér í draumi sem dýrlegt ævintýr, hver dagur, sem ég lifði í návist þinni. Svo morgunbjört og fögur í mínum huga býr hver minning um vor sumarstuttu kynni. Og ástarljóð til þín verður ævikveðja mín, er innan stundar lýkur göngu minni þá birtist mér í draumi sem dýrlegt ævintýr, hver dagur, sem ég lifði í návist þinni. 6. Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig (Lag / texti: erlent lag / Jón Sigurðsson) Vertu‘ ekki’ að horfa svona alltaf á mig ef þú meinar ekki neitt með því. Ef lagleg snót mig lítur á ég litið get ekki upp og roðna alveg niður í tá. Og ef ég verð í einni skotinn ég aldrei þori að segja nokkurt orð. En leynda ósk ég ætla að segja þér, að þú viljir reyna að kenna mér. Því ertu að horfa svona alltaf á mig ef þú meinar ekki neitt með því? 7. Í sól og sumaryl Í sól og sumaryl, ég sat einn fagran dag. Í sól og sumaryl, ég samdi þetta lag. Fuglarnir sungu og lítil falleg hjón, flugu um loftin blá, hve það var fögur sjón. Í sól og sumaryl sér léku lítil börn, ljúft við litla tjörn. Í sól og sumaryl, ég sat og horfði á, hreykna þrastamóður mata unga sína smá. Faðirinn stoltur, hann stóð þar sperrtur hjá, og fagurt söng svo fyllti hjartað frið. Í sól og sumaryl sér léku lítil börn, ljúft við litla tjörn. Í sól og sumaryl, ég samdi þetta lag, hve fagurt var þann dag. 8. Einu sinni á ágústkvöldi Einu sinni á ágústkvöldi austur í Þingvallasveit gerðist í dulitlu dragi dulítið sem enginn veit, nema við og nokkrir þrestir og kjarrið græna inn í Bolabás og Ármannsfellið fagurblátt og fannir Skjaldbreiðar og hraunið fyrir sunnan Eyktarás. Þó að æviárin hverfi út á tímans gráa, rökkur-veg, við saman munum geyma þetta ljúfa leyndarmál, landið okkar góða, þú og ég. 9. Sumarnótt Undir bláhimni blíðsumars nætur barstu’ í arma mér rósfagra mey . Þar sem döggin í grasinu grætur, gárast tjörnin í suðrænum þey. Ég var snortinn af yndisleik þínum ástarþráin er vonunum felld. Þú er ljósblik á lífshimni mínum þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld. Ég vil dansa við þig, meðan dunar þetta draumblíða lag, sem ég ann Meðan fjörið í æðunum funar og af fögnuði hjartans, er brann. Að dansa dátt, það er gaman uns dagur í austrinu rís. Þá leiðumst við syngjandi saman út í sumarsins paradís. 10. Ég veit þú kemur Ég veit þú kemur í kvöld til mín þótt kveðjan væri stutt í gær. Ég trúi ekki á orðin þín, ef annað segja stjörnur tvær. Og þá mun allt verða eins og var sko áður en þú veist, þú veist. Og þetta eina sem útaf bar okkar á milli í friði leyst. Og seinna, þegar tunglið hefur tölt um langan veg, þá tölum við um drauminn sem við elskum, þú og ég. Ég veit þú kemur í kvöld til mín þótt kveðjan væri stutt í gær. Ég trúi ekki á orðin þín, ef annað segja stjörnur tvær.