Blindrafélagið í samstarfi við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu héldu ráðstefnu um heilatengda sjónskerðingu, CVI. Heilatengd sjónskerðing (CVI) er sjónskerðing sem orsakast af skemmdum á sjónbraut og/eða sjónúrvinnslustöðvum í heilanum. Það er talin vera ein meginorsök sjónskerðingar hjá börnum en er oft misskilin og vangreind. Ráðstefnan var haldin fimmtudagur 10. október kl. 14:00 til 18:00. Staður: Verkís, Ofanleiti 2, Reykjavík. Kynnir: Margrét María Sigurðardóttir. Tungumál: íslenska/enska. Markmið: Upplýsa almenning um heilatengda sjónskerðingu. Markhópur: Einstaklingar með CVI, foreldrar og aðstandendur, fagfólk. 01 Setning: Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins. 02 Setning: Margrét María Sigurðardóttir, forstjóri ÞÞM. 03 Dr. Christine Roman-Lantzy. Hvað er CVI eða heilatengd sjónskerðing? 04 Estella D. Björnsson og Dr. Roxana Cziker. Teach CVI Erasmus+ Evrópuverkefni: Samstarf um matstæki og kennsluefni. 05 Dr. Christine Roman-Lantzy. Orsakir CVI 06 Reynslusögur: Dagbjört Andrésdóttir. 07 Reynslusögur: Hjalti Sigurðsson. 08 Dr. Roxana Cziker. Börn með CVI á Íslandi. 09 Estella D. Björnsson. Kynning á þjónustu og tölfræði frá Þjónustu- og Þekkingarmiðstöð (ÞÞM). 10 Ráðstefnu lok: Margrét María Sigurðardóttir, forstjóri ÞÞM og Sigþór U. Hallfreðsson, formaður Blindrafélagsins.