Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins - Auka þáttur: Dagur hvíta stafsins 2020. Í tilefni af degi hvíta stafsins, 15. október 2020, hefur komið út auka þáttur af Hljóðbroti, hljóðtímariti Blindrafélagsins. Þættinum stjórnar Þorkell Jóhann Steindal. Í þessum þætti fáum við kynningu á hvíta stafnum. Þorkell Jóhann Steindal og Eyþór Kamban Þrastarsson fara í göngutúr með hvíta stafinn og tala um hversu mikilægur stafurinn er blindum og sjónskertum. 01 Hljóðbrot kynning. 02 Göngutúr í Kringluna. 03 Herragarðurinn fundinn. 04 Án stafs, með staf og með leiðsöguhund. Athugasemdir eða hugmyndir um efni í næstu þætti má gjarnan senda á netfangið baldur@blind.is eða hafa samband í síma 525 0000.