Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins - sjöundi þáttur. Sjöundi þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Þorkell Jóhann Steindal. Í þessum þætti munum við fræðast um ráðstefnuna Retina International World Congress sem verður haldin í júní næstkomandi í Hörpunni í Reykjavík. Við heyrum viðtal við Már Gunnarsson sem er að halda stórtónleika núna í mars. Við heyrum svo tvær hljóðmyndir: Gísli Helgason og Herdís Hallvarðsdóttir heimsóttu fílaheilsubæli á Indlandi og Sigþór Hallfreðsson sendi okkur upptöku frá heimsókn sinni í Dómkirkjuna í Færeyjarferð sinni í fyrra. 01 Kynning. 02 Hljóðmynd: Sigþór Hallfreðsson heimsækir kirkju í Færeyjum. 03 Viðtal við tónlistar- og sundmanninn Már Gunnarsson. 04 Viðtal við Kristinn Halldór Einarsson - Kynning á RIWC 2020 í Reykjavík. 05 Hljóðmynd: Gísli Helgason og Herdís Hallvarðsdóttir - Fílaheilsubælið á Indlandi. 06 Lokaorð Þið megið gjarnan senda okkur athugasemdir eða hugmyndir um efni í næstu þætti á netfangið baldur@blind.is eða í síma 525 0000.