Hljóðbrot - Hljóðtímarit Blindrafélagsins - sjötti þáttur. Sjötti þátturinn af Hljóðbrot, hljóðtímariti og tilraunar hlaðvarpi Blindrafélagsins er komið út. Þættinum stjórnar Þorkell Jóhann Steindal. Í þessum þætti munum við fræðast um leiðsöguhundanámskeið sem verður á dagskrá í febrúar. Við heyrum viðtal við Brynju Arthursdóttir en hún stjórnar bókmenntaklúbbi Blindrafélagsins sem hélt upp á 15 ára afmæli sitt fyrir stuttu. Við fáum svo að heyra viðtal við Kristínu Sjöfn Valgeirsdóttur og fáum upplýsingar um Heilsuklúbb Blindrafélagsins, sem er kominn í gang með fulla dagskrá í Hamrahlíð 17. 01 Kynning. 02 Brynja Arthursdóttir – Bókmenntaklúbbur Blindrafélagsins. 03 Kristín Sjöfn Valgeirsdóttir – Kynning á heilsuklúbbi Blindrafélagsins. 04 Heilsuklúbbur Blindrafélagsins – Kynningarfundur í sal félagsins. 05 Starfsmaður mánaðarins – Björk Arnardóttir leiðsöguhundaþjálfari. 08 Lokaorð – Mynnum á Þorrablótið 1. febrúar 2020. Þið megið gjarnan senda okkur athugasemdir eða hugmyndir um efni í næstu þætti á netfangið baldur@blind.is eða í síma 525 0000.