Málstofa um punktaletur haldin að Hamrahlíð 17 16. janúar 2019. Frummælendur: Arnþór Helgason fór yfir sögu blindra/punktaleturs, Rannveig Traustadóttir fjallaði um punktaleturskennslu barna, Eyþór Kamban Þrastarson ræddi um ýmis tæknileg mál varðandi punktaletur og Hjalti Sigurðsson sagði frá reynslu sinni af punktaletri. Á eftir voru umræður. málstofustjóri: Sigþór U. Hallfreðsson. Heildartími: 1 klst. 43 mín. Hljóðritun er misjöfn á köflum vegna tæknilegra örðugleika. Efnisyfirlit: 1. Setning málstofu - Sigþór U. Hallfreðsson formaður Blindrafélagsins og málstofustjóri. 5.38 mín. 2. Um sögu punktaleturs, Arnþór Helgason 15.31 mín. Umræður: til máls tóku: Sigþór U. Hallfreðsson, Helga Eysteinsdóttir og Arnþór Helgason. 4.36 mín. 3. Punktaleturskennsla barna: Rannveig Traustadóttir 28.31 mín. 4. Ýmis tækni sen tengist punktaletri, Eyþór Kambgan Þrastarson. 14.50 mín. Umræður. Til máls tóku. Rósa Ragnarsdóttir, Gísli Helgason og Sigþór U. Hallfreðsson. 4.46 mín. 5. Reynsla af notkun punktaleturs: Hjalti Sigurðsson. 9.50 mín. 6. Umræður. Til máls tóku: Ágústa Gunnarsdóttir, Sigþór U. Hallfreðsson, Gísli Helgason, Eyþór Kamban Þrastarson, Hjalti Sigurðsson, Ágústa Gunnarsdóttir. 17.49 mín. 7. Lokaorð umræðustjóra. 1.17 mín.